Sigurjón lunkinn að fá fyrsta laxinn
„Fyrsti laxinn er kominn í Langá á Mýrum og veiddist rétt fyrir átta, það var Sigurjón Gunnlaugsson sem veiddi laxinn eins og hann hefur oft gert áður kallinn,“ sagði Jógvan Hansen um fyrsta laxinn í ánni þetta árið.
„Fiskinn veiddi hann á Glannabrot og tók litla franes. Þetta verður bara skemmtileg opnun eins og alltaf,“ sagði Jógvan enn fremur.
Sigurjón hefur oft veitt fyrsta laxinn í Langá á Mýrum og 2017 opnaði hann Laxá í Kjós og þar veiddi hann fyrsta laxinn.
