FréttirSjókvíaeldi

Mótmæla sjókvíaeldi í Seyðisfirði

Mótmæli voru haldin á Seyðisfirði og Austurvelli í Reykjavík gegn sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Fyrirtækið Kaldvík hefur fengið leyfi fyrir tíu þúsund tonna laxeldi í firðinum.

Um 200 manns mótmæltu á Seyðisfirði þar sem þátttakendur lokuðu einu landleiðinni inn í fjörðinn til að sýna fram á að fiskeldið, sem og laxeldisfyrirtækið Kaldvík, væru ekki velkomin þangað.

Á sama tíma og var einnig mótmælt á Austurvelli. Vá, félag um vernd fjarðar, Landvernd og Verndarsjóður villtra laxastofna, stóðu fyrir mótmælunum.

„Það er verið að gera ranga hluti með því að setja fiskeldi í þennan þrönga, fallega fjörð,“ segir Júlía Hannam mótmælandi.