Tveir laxar nóg fyrir mann
„Já það var bara veisla skal ég segja þér á efsta svæðinu í Langá á Mýrum í vikunni, meiriháttar,” sagði Jógvan Hansen nýkominn úr veiði af svæðinu og tveir laxar voru nóg fyrir kallinn. „Ég skal segja að þetta var veisla, einn þarna lengst upp á fjalli og frábær veiði. Það er mikið af fiski á svæðinu bæði lax og bleikja. Fékk tvo laxa og nennti alls ekki meiru, klikkað að gera í bænum. Það er byrjað að selja á Vitringana 3 og það gengur frábærlega.
Annar laxinn var 81 sentimetrar og hann fór út með línuna á hljónu, var með fimmu og þetta var stuð. Gott að komast til fjalla aðeins og það verður stuð á næstunni, Vitringarnir ganga vel já og veiðin var fín, er hægt að biðja um meira, nei,” sagði Jógvan enn fremur.

