Rísi í Urriðafoss, sleppt aftur
Grétar Jóhann átti eina eftirminnilegustu vakt sína í Urriðafossi í morgun.
Eftir um 40 mínútna baráttu við þennan risa lax tókst Jóa loksins að landa honum. Laxinn mældist heilir 101,2 cm og er einn stærsti lax sem veiðst hefur í Urriðafossi.
Þessum merkilega laxi var að sjálfsögðu sleppt aftur og fékk hann að halda áfram för sinni upp ána.
Laxinn tók í Lækjalátri en var að lokum landað í Huldu eftir langa baráttu. Flugan sem hann féll fyrir var gyllt Bismo áltúba.
440 laxar hafa veiðst í Þjórsá.

