Ungi veiðimaðurinn efnilegur með fluguna
Við félagarnir Ásgeir Þór Kristinsson og Hallgrímur Jóhannsson vorum í útilegu í Vaglaskógi með fjölskyldum okkar. Við stungum af einn daginn í veiði í Ljósavatni og með okkur var hann Kristófer Gauti, sem er 9 ára og hefur mikinn áhuga á að fara í veiði með pabba sínum Hallgrími. Okkur langaði að leyfa honum að prufa nýja Orvis barna fluguveiðisettið sem Viktoría dóttir mín fékk fyrr í sumar. Við vorum við veiðar í ca 2 tíma og létum Kristófer Gauta þreyta fiskana og draga þá að landi. Alls voru þetta 5 fiskar sem hann veiddi.
Ljósavatn er vatn sem margir veiða í enda vatnið stórt og mikið um sig. Sögu af veiði mættu vera fleiri af þessum slóðum en af öðrum veiðimanni fréttum við daginn sem veiddi 10 fiska en þeir voru frekar smáir en fengust líka á ýmsar flugur í vatninu.


