FréttirVeiðitölur

Þverá í Borgarfirði á toppnum

Það er alveg hægt að segja að laxveiðin fari rólega af stað, einn og einn lax er að veiðast í veiðiánum  sem hafa opnað, varla meira. Tveggja ára laxinn er að koma í miklu minna mæli en menn áttu von á, þrátt fyrir spár fræðimanna. En eins árs laxinn er vonandi að koma í miklu mæli, þrátt fyrir að enginn viti það reyndar. 

Árnar opna ein af annarri og veiðin var jú ágæt til að byrja með í nokkrum þeirra. Fyrstu dagarnir  voru  góðir en síðan gerist lítið sem ekkert. Ennþá er verið að bíða eftir fyrsta laxinum eins og í Laxá á Ásum og Jöklu. Jónsmessu straumurinn  var snemma í ár en næsti straumur er stóra málið. Hvað mun gerast í honum bíða allir eftir.

En kíkjum aðeins á veiðitoppinn, Þverá í Borgarfirði hefur gefið þá 114 laxa, síðan kemur Norðurá líka ættuð úr Borgarfirði með 78 laxa, svo Þjórsá með á milli 50 og 60 laxa, Miðfjarðará hefur gefið 40 laxa og svo Haffjarðará með 36 laxa. Blanda hefur gefið 22 laxa og Laxá í Aðaldal með 12. 

Næsta vika verður fróðleg lesning og hvað mun gerast, hvað mun koma í næsta strraumi, auðvitað vona allir að það verði verulegur slatti og stórar göngur.