FréttirÞættir

Nýr þáttur á DV; Veiðin með Gunnari Bender í Hrútafjarðará

Þröstur: „Núna þessa vikuna er búið að veiðast mjög vel í hliðaránum, við erum komnir yfir 900 laxa“. Gunnar með Þresti við Hrútafjarðará

Veiðin með Gunnari Bender er nú aðgengilegur á DV. Í þættinum fer Gunnar í Hrútafjarðará og hittir þar Þröst Elliðason.
„Við skulum sjá til hvað við finnum“, segir Þröstur meðan hann hnýtir fluguna. „Þetta er glæsilegur strengur, flottur veiðistaður“. Ekkert bítur á og færa þeir félagar sig til í ánni sem Þröstur þekkir býsna vel. „Eina sem vantar núna er laxinn,“ segir Gunnar.
„Núna þessa vikuna er búið að veiðast mjög vel í hliðaránum, við erum komnir yfir 900 laxa,“ segir Þröstur. „Í raun og veru er þetta að mestu frábært sumar.“
Þættirnir eru unnir í samstarfi við Veiðar.is sem er nýr frétta- og upplýsingavefur um sport- og laxveiðar í íslenskri náttúru. Á vefnum eru nýjustu fréttir úr veiðinni og því sem þar gerist á hverjum tíma, auk viðtala og frásagna af veiðiferðum, reynslu og upplifun einstaklinga og hópa í veiðimennsku.
Gunnar Bender ritstjóri er annálaður áhugamaður um stangveiðar í ám og vötnum sem og auðvitað hafi, og er með áratuga reynslu af sportveiði og veiðimennsku. Gunnar hefur ferðast um landið árið um kring og hitt sportveiðifólk og aðra áhugasama um veiðar og útivist.
Í þessum ferðum sínum dreifir Gunnar meðal annars Sportveiðiblaðinu, einu mest lesna og virtasta tímariti um laxveiðar á Íslandi en Gunnar stofnaði til útgáfunnar fyrir 40 árum og hefur verið þar ritstjóri og útgefandi síðan.

Veiðiþætti Gunnars þekkja margir en hann hefur framleitt slíka þætti um veiðar í villtri náttúru Íslands og frá helstu laxveiðiám landsins. Nokkrir af veiðiþáttum Gunnars eru aðgengilegir á veidar.is og á YouTube rásinni Veiðar.

Ekkert á í þetta sinn