FréttirViðtöl

Minningar af bakkanum

Í júní opnar Tómas Helgi Kristjánsson sína fyrstu sýningu með verkum Veiðislóðar á Borgarbókasafninu Spönginni. Sýningin ber heitið Minningar af bakkanum og samanstendur af verkum sem sýna íslenskar veiðiár og vötn í einföldum, stílhreinum línum.
Verkin eru byggð á raunverulegum útlínum íslenskra veiðisvæða og á sýningunni má meðal annars sjá Norðurá, Laxá í Aðaldal, Rangárnar, Þverá/Kjarrá, Elliðaárnar, Stóru Laxá og fleiri þekkt veiðisvæði.
„Þetta byrjaði eiginlega bara sem smá tilraun, að teikna upp veiðisvæði. Svo fór ég að átta mig á því hversu sterkar tilfinningar fólk ber til þessara staða. Þeir hafa mikla þýðingu fyrir fólk og ekki bara veiðimenn,“ segir Tómas Helgi. Tómas hefur unnið að Veiðislóð frá síðasta sumri. Hugmyndin hefur frá upphafi verið að draga fram form ánna og vatnanna á einfaldan og stílhreinan hátt, en reyna um leið að halda í það sem gerir hvern stað einstakan.
„Það sem mér finnst skemmtilegast er að sjá hvernig verkin kveikja á minningum. Fólk fer að benda á staðina þar sem það fékk fyrsta laxinn, stærsta urriðann eða upplifði eitthvað annað sem situr eftir,“ segir hann.
Á sýningunni verða verkin ekki aðeins sýnd sem myndræn framsetning á ám og vötnum, heldur einnig í samhengi við veiðiminningar veiðimanna. Tómas hefur safnað sögum frá veiðimönnum sem tengjast ánum og munu þær verða hluti af sýningunni. „Fyrir mér eru þessi verk ekki bara um formin sjálf heldur minningarnar sem fylgja þeim. Hvert staður geymir sögur. Maríulaxinn, góður dagur með vinum, veiðiferð með fjölskyldunni eða bara augnablik við ána sem gleymist ekki.“
Tómas segir að ákveðin ábyrgð fylgi því að vinna með þessi form. „Þetta eru staðir sem hafa mótað okkur sem einstaklinga og þjóð. Á Íslandi eigum við það stundum til að taka náttúruna sem sjálfsögðum hlut. Fyrir mér eru verkin líka áminning um að við þurfum að ganga vel um þessa staði svo komandi kynslóðir fái að njóta þeirra forréttinda sem þeim fylgja.“
Sýningin tengist því ekki aðeins minningum fólks af íslenskum veiðisvæðum heldur einnig framtíð þeirra.  20% af sölu verkanna á sýningunni mun renna til Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF).
Sýningaropnun verður föstudaginn 5. júní kl. 16:30 á Borgarbókasafninu Spönginni. Sýningin stendur til 30. júlí 2026 og aðgangur er ókeypis.

Viðburðinn á Facebook má finna hér: https://fb.me/e/61KqJItzj