Nýtt stafrænt veiðikort fyrir Ytri-Rangá og ósasvæði Hólsár
Við hjá IO veiðileyfi höfum sett saman nýtt stafrænt veiðikort fyrir Ytri-Rangá og ósasvæðið í vesturbakka Hólsár. Kortið er hugsað sem einfalt og gagnlegt verkfæri fyrir veiðimenn, þar sem finna má helstu upplýsingar sem skipta máli á svæðinu. Þar má sjá vaðleiðir, bílastæði og staðsetningu tökustaða, ásamt stuttum lýsingum á helstu stöðum.
Hægt er að smella beint á veiðistaði á kortinu til að lesa nánar um hvern stað og munum við halda áfram að bæta við efni og þróa kortið með tímanum. Kortið hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eru að koma í fyrsta skipti á svæðið, en nýtist ekki síður reynslumeiri veiðimönnum til að rifja upp svæðið og skoða það frá nýju sjónarhorni.
Við tökum öllum ábendingum fagnandi og viljum endilega þróa kortið áfram með ykkur.
Hægt er að nálgast kortið hér.
Nánari upplýsingar um Ytri Rangá má finna hér.

