FréttirUrriðiVatnaveiði

Ungur og efnilegur veiðimaður

/Mynd: María Gunnarsdóttir

„Við vorum að landa þessum urriða rétt áðan,“ sagði faðir Azuolas ungs veiðimanns frá Litháen í gær við Elliðavatn rétt áður en veiðimaðurinn ungi landaði fiskinum á stöngina sína. Elliðavatn hefur farið ágætlega af stað og veiðimennn verið iðnir við veiðina síðan vatnaði opnaði.

Í gær voru nokkrir að veiða um allt vatnið og þrír veiðimenn  langt úti í vatninu að kasta flugunni. „Við erum bara búnir að veiða hérna stuttan tíma,“ sagði faðir unga veiðimannsins við Elliðavatn.

Veiðimenn voru líka við Helluvatn og köstuðu flugunni. „Það hefur eitthvað veiðst í Helluvatni núna í byrjun,“ sagði veiðimaður við vatnið, einn og einn urriði.

Meðalfellsvatn hefur líka verið að gefa af fiski en fiskurinn mætti vera stærri, einn og einn góður fiskur.