Stefnir í skítkalda opnun
Það eru ekki nema nokkrir klukkutímar þangað til vorveiðin byrjar fyrir alvöru en búast má við skítakulda og frosnar lykkjur. Tíðarfarið hefur verið rysjótt síðustu vikurnar en veiðimenn ætla ekki að láta það á sig hafa og ætla strax á fyrsta degi til veiða.
„Við erum að byrja fyrsta apríl í Geirlandsá, Vatnamótum og svo Þingvöllum líka,“ sagði Kristján Páll Rafnsson um opnunina hjá Fisk Partner sem eru alltaf að bæta við sig nýjum veiðisvæðum, Hjaltadalsá og Kolka núna síðast. Verður spennandi að sjá hvernig veiðin byrjar fyrir austan, Tungulækur og Tungufljót opna líka fyrir austan.
Já veiðin byrjar víða þann 1. apríl, veida.is vefurinn segir frá og selur veiðileyfi í Brúará, Hvíta við Skálaholt, Hólaá við Útey, Hraun í Ölfusi, Galtalæk og Sog Torfafæði. „Minnivallarlækur er að opna 1.apríl og veiðimenn byrja á fyrsta degi,“ sagði Þröstur Elliðason hjá Strengjum um Minnivallarlækinn. Hann hefur oft gefið vel í byrjun tímabilsins.
En best er að klæða sig vel, það gæti verið kalt fyrstu daga tímabilsins, fóðurland og fleira gott til að halda hita í kuldanum.

