Biðin styttist með hverjum deginum
„Veiðin í Hvols- og Staðarhólsá er fjölbreytt og krefjandi, þar sem lestur á straumi, réttar flugur og góð staðsetning skipta sköpum. Þetta er á sem gerir kröfu til veiðimannsins og verðlaunar þá sem gefa sér tíma og nálgast hana af virðingu,“ segir Karen Lind Hilmarsdóttir er við spurðum hann síðasta sumar og næsta veiðisumar sem styttist í með hverjum deginum.
„Umhverfið er rólegt og aðgengilegt og setti sterkan svip á upplifunina í heild. Fyrir mér hefur þetta svæði þó einnig persónulega merkingu, enda er ég fædd og uppalin á þessum slóðum og þekki ána frá ólíkum sjónarhornum og við mismunandi aðstæður.
Á meðan veiðinni stóð er gott að fá upplýsingar um ána og veiðisvæði það skiptir miklu máli fyrir veiðimenn. En með tíð og tíma lærir maður á ána þegar farið er oftar til veiða í sömu á. Árnar bjóða upp á heiðarlega veiði í fallegu umhverfi og er svæði sem stendur undir nafni.
Miðað við reynslu fyrri ára er líklegt að veiðin í sumar verði aftur sótt á þessar slóðir, þar sem aðstæður og veiðigæði hafa jafnan verið stöðug. Auk þess er verið að skoða fleiri veiðiferðir í sumar, þar sem áhersla verður lögð á fjölbreyttar aðstæður og ólíka veiðireynslu. Við hjónin vorum einnig svo heppin að fá veiðileyfi í Korpa næstkomandi sumar, sem verður spennandi viðbót við veiðitímabilið,“ segir Karen Lind enn fremur.


