Gylfi Pálsson
BækurFréttir

Út með færið! – veiðibókin í ár

Þær eru ekki margar veiðibækurnar sem við höfum heyrt um þessi jólin, en þó er ein komin út. Það er bókin Út með færið! – Á veiðum með Gylfa Pálssyni. Við heyrðum í Ásmundi Helgasyni hjá Drápu, sem gefur bókina út.
„Hér er á ferðinni ómissandi bók fyrir allt veiðifólk. Gylfi Pálsson heitinn var vel þekkt stærð í veiðiheiminum og skrifaði ótal pistla um allar hliðar stangveiðinnar. Tvö af börnum Gylfa, þau Þóra og Trausti, höfðu samband því þau vildu að skrif Gylfa kæmust á bók. Þar sem ég er forfallinn veiðidellumaður sagði ég samstundis JÁ! Við tók vinna við að velja greinar og pistla eftir hann Gylfa og það var úr mörgu að velja skal ég segja þér. Við reyndum að velja skemmtilegustu og bestu sögurnar hans og við vildum hafa úrvalið fjölbreytt. Í bókinni skrifar því Gylfi um silungsveiði, laxveiði, vatnaveiði, veiði í ám og veiði úr fjöru! Hann skoðar einnig umhverfi veiðimannsins, bæði náttúruna og umgjörðina. Sögurnar eru bæði fróðlegar, spennandi og stórskemmtilegar. Eina eftirsjáin er eftir þeim pistlum sem komust ekki að í bókinni.“

Yngra veiðifólk þekkir kannski ekki til Gylfa en það er af honum að segja að hann var helsjúkur af veiðibakteríunni og stundaði stangveiði af ástríðu, bæði silungs- og laxveiði. Hann var líklega þekktastur í veiðiheiminum fyrir það að hafa verið ritstjóri Veiðimannsins, tímarits SVFR, frá 1994 til 2001. Í blaðið skrifaði hann fjölmargar greinar, pistla og viðtöl. „Við höfðum úr öllum þessu að velja en auk þess skrifaði Gylfi pistla í aðra fjölmiðla og einnig fyrir sjálfan sig, pistla sem hafa ekki birst áður. Gylfi fæddist á Akureyri 1933 og lést árið 2024. Hann fór síðast til veiða þegar hann var rúmlega níræður. Við erum mjög ánægð með að geta boðið veiðifólki upp á þessa frábæru veiðibók núna fyrir og um jólin,“ segir Ásmundur að lokum.