Bregðast þarf við drónanotkun í stangveiðiám
„Drónanotkun í stangaveiði er orðin ein allsherjar þvæla og skrumskæling á annars frábæru sporti,” segir Haraldur Eiríksson leigutaki Laxar í Kjós og Hitara.
„Að þurfa að fara til veiða með það á hættu að aðrir séu að notast við þvílíkan búnað er náttúrulega orðið fyrir neðan allar hellur. Við Laxá í Kjós og Hítará á Mýrum hafa drónar verið bannaðir í veiðireglum undanfarin ár nema til að framleiða kynningarefni veiðiréttarhafa eða við veiðivörslu. Ráð væri að aðrir fetuðu sömu leið.
Það að veiðimenn skuli mæta með þetta til veiða og þannig svína á ekki aðeins veiðifélögunum heldur bráðinni sjálfri er fyrir neðan allar hellur.
„Í gær sendi ég erindi til Landssambands Veiðifélaga þar sem ég óskaði eftir nánari útlistun á réttarstöðu veiðiréttarhafa gagnvart þessum tækjum. Það er komin tími til að afstaða til dróna sé tekin og henni komið inn í lög um lax- og silungsveiði. Það eru fordæmi fyrir slíku banni til að mynda í skotveiði, og sem dæmi er bannað að elta hreindýr á vélknúnum ökutækjum.Við núverandi ástand verður ekki unað,” segir Haraldur í lokin.

