Tvo hundruð laxar á land
„Áttum frábæran dag í Leirvogsá fyrir fáeinum dögum, ég og konan Guðdís Eiríksdóttir,” sagði Níels Valur Vest og bætti við; „það var gott veður 13 stiga hiti og skýað en logn, geggjað. Flotta vatnsstaða i ánni, byrjuðum á efra svæðinu, misstum nokkra en náðum ekki að landa þar fiski. Seinni vaktina ákveðum við að fara upp í gljúfur efsta svæði, ekki auðvelt að komast en borgaði sig að brölta þangað þvi þarna vatr fullt af fiski, lönduðum 4 fiskum og misstum helling víð krefjandi aðstæður, þvílík veisla og gaman hjá okkur, enduðum svo vaktina á neðsta svæðinu og löndum 2 fiskum þar um kvöldið, þvílík stemning” sagði Níels Valur enn fremur hress með veiðitúrinn.
Leirvogsa er komin með 200 laxa og ennþá er töluvert eftir af veiðitímanum.

