Áin er stútfull af laxi
„Þetta er búið að vera fjör í Laxá í Leirársveit um helgina Bender, áin er stútfull af laxi, laxar á öllum stöðum og mikið af fiski,” sagði Eiríkur Garðar Einarsson veiðimaðurinn snjalli á bökkum árinnar, en hann var einmitt þegar mest gekk af fiski í ána fyrr í sumar. Áin hefur gefið 455 laxa en var með 589 laxa í fyrra og fer því töluvert yfir þá tölu.
„Ég er búinn að veiða 12 laxa og tvo flotta sjóbirtinga en við náðum að setja í helling en náðum ekki öllum. Þetta er bara veisla hérna skal ég segja þér. Samt lentum við miklu roki og aðstæður voru verulega erfiðar hér, en þetta gekk vel. Lenti svo í veislu í morgun síðasta hálfa daginn, setti í fimm í röð í Ármótahyl, meiriháttar og um morguninn setti ég í boltalax neðar í ánni. Laxá er alltaf skemmtileg,” sagði Eiríkur enn fremur.
Það rignir verulega á milli þess sem sólin sýnir sig aðeins. Og það hleypir lífi í þetta aftur og aftur, sem skiptir öllu máli.

