Fréttir

Flott veiði í Hrútafjarðará

Ólafur Sigfús með 83 cm hrygnu úr Réttarfossi sem er efsti veiðistaður í Hrútafjarðará

Ólafur Benediktsson og Sindri Bjarnason gerðu flotta veiði í Hrútafjarðará nú á dögunum. Hrútafjörðurinn tók vel á móti þeim, nánast logn allan tímann og stöku skúrir inn á milli. Það var fiskur út um alla á og aðstæður góðar. Þeir félagar voru saman á stöng og náðu 7 löxum á land. Fjórir laxar yfir 80 cm og einn yfir 90 cm.

Óli og Sindri voru báðir himinnlifandi með þessa veiðiferð en báðir voru þeir að veiða Hrútafjarðará í fyrsta skipti. „Frábær veiðitúr,“ sagði Ólafur Benediktsson um ferðina í Hrútafjarðará.

Hrútafjarðará hefur gefið 50 laxa og þó nokkuð af bleikju, mest neðarlega í henni.

Sindri Bjarnason með 91 cm hrygnu úr Bæjarhyl sem stökk á rauðan Frances