Stórsöngvarinn Jógvan kemur við sögu í Veiðivinir 2
Veiðivinir 2 er komin í bókaverslanir og er framhald af veiðiævintýrum Páls og Bjarna sem að þessu sinni eru mættir í Veiðivötn. Þar kynnast þeir kynlegum kvistum, þjálfurum, söngstjörnum, veiðistúlkum og furðuverum sem gerir veiðiferðina enn skemmtilegri og svo kemur þekkt söngstarna við sögu:
„Strákarnir bíða spenntir í smá stund og allt í einu hoppar bílstjórinn út og er eitthvað kunnulegur, veiðimaðurinn og dóttir hans standa við bílinn. Páll og Bjarni þekkja hann strax, þetta er Jógvan Hansen Færeyingurinn, sem opnar alltaf Langá á Mýrum á hverju sumri. Jógvan og dóttir hans eru mætt í Veiðivötn en synirnr komust ekki með að þessu sinni. Jógvan heilsar með þéttu handabandi og talar mikið og hann talar meira en afi þeirra. Það er bara talað um veiði og aftur veiði. Jógvan byrjar að setja saman stangirnar sínar, eina í einu reyndar. Hann er sannarlega kominn í veiðigírinn…
… Þar var allt á fleygiferð. Jógvan var að grilla bleikjurnar sem hann og dóttir hans höfðu veitt um morguninn.
„Viljið þið ekki bleikju á kafi í grænmeti, þetta er bara nammi,“ sagði Jógvan og heldur áfram að grilla.“
Veiðivinir 2 er eftir Gunnar Bender og myndskreytt af Guðna Björnssyni og má nálgast í flestum bókaverslunum og veiðibúðum um land allt.

