Laxá að gefa frammá síðustu mínútu
Laxá í Aðaldal bætti sig verulega á milli ára og síðasta kastið hefur verið tekið þetta sumarið. Bætingin er veruleg.
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður og grjótharða sunnanátt endaði síðasta holl í 48 löxum. Alls eru 1053 laxar eru skráðir á Angling en þar er ekki talið það sem veiddist fyrir utan okkar svæði. Það er óhætt að segja að sumarið hafi farið fram úr öllum væntingum! Við erum ofboðslega þakklát fyrir þessa frábæru veiði og hvað áin okkar er í góðu standi. Við viljum þakka öllum okkar frábæru veiðivinum og viðskiptafélögum fyrir dásamlegar stundir á árbakkanum í sumar. Þar til næsta…



