FréttirVeiðiferð

37 ár í misjafnir veiði í Laxá

Hópurinn við bakka Laxár

„Í 37 ár hefur kjarni nokkurra vina og félaga stundað veiðar í Laxá í Leirársveit. Skilyrði og þess að mega slást í hópinn er að játa sig sem Framsóknarmann í veiðihúsinu,“ segir Hjálmar Árnason og bætir strax við; „með okkur hafa verið alls kyns karlar úr hinum ýmsu flokkum en sambúðin verið friðsamleg og skemmtileg enda mennn saman komnir til að skemmta sér og njóta þess að vera í góðum félagsskap við fallega á.  Nokkrir  hafa sagt sig frá Framsóknarmennsku eftir veiðiferð. Við höfum kynnst mörgum fínum og skemmtilegum mönnum sem hafa komið og farið. Nýir menn falla yfirleitt einkar vel í hópinn. 

Efsta myndin sýnir Miðfellsfljót sem ég tel einn flottasta veiðistað i heimi en er í raun nokkrar veiðistöðvar. Þegar liður á sumar safnast fiskar þar og má iðulega sjá nokkra á lofti í einu.

Mið myndin sýnir hópinn í „Happy hour“ á bakkanum um síðustu helgi. Þrátt fyrir úrhellið var þetta skemmtileg stund enda félagsskapurinn frábær. Neðri myndin er nokkurra ára gömul en þegar við Jón heitinn Gunnar komum að Laxfossi að morgni dags í júlí. Ekki sást til botns vegna risa laxatorfu.  Tókum hvor um sig 15 fiska á rúmum klukkutíma, allt á hitch.

„Á þessum tæpu 40 árum hafa aflabrögð verið misjöfn enda íslensk náttúra dyntótt sem kunnugt er.  Þegar best hefur látið var hópurinn með um 60 laxa eftir tveggja daga veiði.  Aðrir túrar hafa verið eins og sá siðasti minna gjöfulir. Núna rigndi meira en eðlilegt getur talist. Áin varð beljandi og ófrýnileg.  Þannig var minn uppáhaldsveiðistaður, Miðfellsfljót, óveiðanlegur vegna flóðs. Í svona ferðum er samveran hvað mikilvægust sem reyndist raunin núna.  Hlakka verulega til næsta sumars þegar hópurinn hittist í 38. skipti (vonandi í minna regni),“ sagði Hjálmar enn fremur.

Laxatorfa /Mynd: Ólafur Jensson