Það þarf fleiri unga veiðimenn í veiðina /Mynd: Guðbjörg
FréttirGreinKrakkar

Þarf miklu fleiri unga veiðimenn í sportið á hverju ári

„Við þurfum fleiri ungmenni í veiðina á öllum aldri, endurnýjun er of lítil,“ sagði eldri veiðimaður við mig í fyrradag þar sem hann var að kaupa flugustöng handa barnabarninu í jólagjöf og bætti við; „veiðileyfi eru orðin of dýr, ungir veiðimenn geta lítið keypt af þeim. Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur staðið sig frábærlega og leyft ungum veiðimönnum að veiða í Elliðaánum, nokkrum sinnum á sumri. Þarna fá þeir að veiða á góðum tíma og það hefur mikið að segja fyrir þá,“ sagði veiðimaðurinn og teygði sig í flugustöngina  sem átti að fara í jólapakkann til barnabarnsins.

Það þarf átak til að leyfa ungum veiðimönnum að renna fyrir fisk í alvöru laxveiðiám, miklu meira en núna er. Vötnin eru góð víða en árnar eru allt öðruvísi og meiri möguleiki á stærri fiskum. Þess vegna þarf að gera átak strax.

Veiðbókin Veiðivinir 2, ýtir vonandi á að fleiri fari að veiða, áhuginn er fyrir hendi um land allt. Það er ekki nóg að veiða á bryggjum endalaust, það þarf miklu meiri í alvöru veiði.  Árnar eru spennandi fleiri og fleiri vilja veiða í þeim. Það þarf að auðvelda ungu áhugasömu fólki útí náttúruna.