Villti laxinn að hverfa í boði stjórnvalda
Villti laxinn í Hrútafjarðará gæti horfið í boði stjórnvalda og sjókvíaeldisfyrirtækja.
Ný líkanagreining Arev sýnir að eftir 50 ár gætu um 97% hrygningarlaxa í ánni verið eldislax eða blendingar. Þá er í raun ekkert eftir af þeim villta laxastofni sem hefur lagað sig að ánni í þúsundir ára.
Skaðinn verður óafturkræfur. Samkvæmt líkaninu nær villti stofninn sér ekki aftur á næstu 50 árum, jafnvel þótt sjókvíaeldi yrði hætt. Greiningin gerir ráð fyrir að framleiðsla verði fullnýtt og strok haldi áfram eins og hingað til.
Landssamband veiðifélaga hefur lengi talað fyrir daufum eyrum stjórnmálamanna, stofnana og stjórnsýslunnar í heild. Þar er því haldið fram að hægt sé að stunda opið sjókvíaeldi með frjóum fiski án þess að villtir laxastofnar beri stórskaða af. Þessi greining er enn einn vitnisburðurinn um að það er ekki hægt.
Ef stunda á laxeldi við Íslandsstrendur verður það að fara fram í lokuðum kvíum með ófrjóum fiski.

