FréttirVeiðidagur

Þetta er bara frábært í alla staði

Fyrstu ungmennadagar Stangaveiðifélags Reykjavíkur í Langá á Mýrum fóru fram dagana 18. – 20. ágúst og óhætt er að segja að þeir hafi heppnast einstaklega vel. Viðburðurinn er kærkomin viðbót við starf félagsins og er ætlaður ungmennum á aldrinum 16–20 ára.

Viðtökurnar voru hreint út sagt frábærar en hátt í sjötíu umsóknir bárust. Alls fengu 48 ungmenni pláss og þátttakendum var skipt í tvo hópa. Hvor hópur fékk eina síðdegisvakt og eina morgunvakt við ána.

Gist var í veiðihúsinu Langárbyrgi þar sem boðið var upp á mat frá Lúx veitingum og kvöldskemmtun með Jógvani Hansen og Gunnari Helgasyni. Rúta var í boði fyrir þá sem vildu og lögð var áhersla á góða stemningu og samveru alla ferðina, bæði við ána og í veiðihúsinu.

„Þetta var bara frábært í alla staði og skemmtilegt,“ sagði Jógvan Hansen.