VEIÐIN þáttur 4 kominn á DV: Minntist Íslandsvinar sem tengdist bresku konungsfjölskyldunni
Í nýjasta þætti Veiðarinnar með Gunnari Bender er Haraldi Eiríkssyni fylgt eftir við veiðar í Hítará á Mýrum. Í veiðinni minnist Haraldur látins vinar síns sem var mikill Íslandsvinur og hafði þó nokkra reynslu af veiðum í íslenskum ám. Þessi Íslandsvinur var einnig vel kunnugur bresku konungsfjölskyldunni.
Haraldur byrjar veiðina á flugu sem Jón Ingi Ágústsson hannaði. Flugan er nefnd í höfuðið á vini Haraldar Edward Pettifer. Pettifer var Breti en hann lést, 31 árs að aldri, í hryðjuverkaárás í New Orleans í Bandaríkjunum á nýársnótt 2025. Hann var einn af 14 sem létust þegar maður ók pallbíl á hóp fólks. Maðurinn steig síðan út úr bílnum og hóf skothríð en hann lést í skotbardaga við lögreglu.
Pettifer var vel kunnugur bresku konungsfjölskyldunni en stjúpmóðir hans var barnfóstra prinsanna Vilhjálms og Harry á árunum 1993-1999. Hún var þá þekkt undir nafninu Tiggy Legge-Bourke en ber nú nafnið Alexandra Pettifer. Vilhjálmur prins minntist Pettifer í færslu á samfélagsmiðlum og Karl konungur hafði samband við fjölskyldu Pettifer til að votta samúð sína.
ÍSLANDSVINUR
Pettifer deildi eins og kunnugt er áhuga sínum á veiðum í íslenskum ám með konunginum.
Haraldur segir frá því í þættinum að Edward Pettifer, vinur hans, hafi oft stundað veiðar í Laxá í Kjós og verið leiðsögumaður veiðimanna í Selá og Hofsá. Hvort þar er átt við Selá í Vopnafirði eða Selá í Álftafirði er ekki tekið beint fram en líklega er það fyrrnefnda áin þar sem Hofsá er einnig í Vopnafirði og Haraldur segir báðar árnar vera „fyrir austan.“
Flugan minnir mjög á Pettifer sjálfan en hún er í stíl við litinn á hári hans og augum.
Haraldur segir að flugan hafi verið prófuð lítillega áður en þetta sé í fyrsta sinn sem hún sé notuð að einhverju ráði.
Aðspurður segir Haraldur Laxá í Kjós og Hítará vera mjög ólíkar. Hítará sé kaldari og þar veiðist því betur í hlýju veðri.
Haraldur segir að það hafi veiðst minna í Hítará eftir að gömul brú yfir ánna var fjarlægð sem varð til þess að laxinn kemst greiðar um ánna og því orðið erfiðara að veiða hann. Hann gerir síðan grein fyrir hvernig áin hefur breyst síðan hann byrjaði að veiða í henni á unglingsaldri.
Hvort veiðin, með flugunni sem hönnuð var til minningar um Íslandsvininn Edward Pettifer, hafi borið árangur er hægt að sjá í þættinum sem horfa má á í heild sinni hér fyrir neðan.
DV 28.11.26

