Frábært sumar í Leirársveit
Þá er frábæru laxveiðisumri lokið í Laxá í Leirársveit. Lokaniðurstaðan 1096 laxar á land í þessari 6 stanga á í fögru umhverfi í Leirársveit.
Til samanburðar komu 607 laxar á land árið 2025 svo bætingin var umtalsverð.
Laxá hefur verið mjög stöðug til margra ára með uppsveiflum inn á milli, laxinn er vel haldinn í ár líkt og víða, og í raun er grátbroslegt að þurfa að pakka saman meðan skilyrðin eru jafngóð og raun ber vitni en við þurfum að gefa drottningum árinnar þann frið sem þær þurfa til að stuðla að bjartri framtíð.

