Blanda ekki dauð úr öllum æðum
Það fóru 127 laxar í gegnum teljarann í nótt og því klárt mál að Vatnasvið Blöndu er fullt af lífi um þessar mundir.
Blanda er buin að gefa næstum 500 laxa og því búin að margfalda veiðina frá síðasta àri sem var lélegt sumar. En laxinn er ennþá að ganga af fullum krafti þó seint sé.
Það er ekki útlit fyrir að áin fari á yfirfall og því um að gera að skella sér í laxveiði. Það eru lausar stangir á öllum svæðum út tímabilið og hægt að bóka strax í vefsölunni hjá Fish Partner.

