Frábær veiðikynning við Sogið
Fjöldi áhugasamra veiðimanna kom í Alviðru 15. ágúst til veiðidags Alviðru 2026. Við Ingólfur Ásgeirsson, veiðiréttarhafi hjá Störum, tókum á móti veiðimönnum og fluttum kynningartölur og skýrðum reglur og skipulag. 25 veiðimenn kynntust síðan hyljum og stökkvandi fiskum. Tveir leiðsögumenn leiðbeindu við köst og veiðistaði. Við lok veiða kom í ljós að allir höfðu veitt útvistargleði og fóru heim með sól í sinni.
Tilgangur veiðidags Alviðrunefndar er að kynna veiðimönnum Sogið, vernd árinnar, veiðimöguleika og starf Landverndar í Alviðru. Sogið, fyrrum ein mesta veiðiá Íslands, er kunn fyrir fegurð og stóra laxa. Veiði fer vaxandi að nýju eftir nokkur léleg veiðiár. 80 veiðimenn höfðu samband við mig dagana fyrir veiðidag og vildu gjarnan koma til veiða en aðeins þriðjungur þeirra komst að í þetta skipti. Reglan er að þau fyrstu sem bóka komast að. Veiðidagur Alviðru er árlegur viðburður. Til að koma til móts við vaxandi áhuga legg ég til að veiðidegi 2027 verði skipt í tvennt. Fyrri hópur veiði kl. 9-12 og sá seinni kl. 15-18. Þar með má tvöfalda þann hóp veiðimanna sem kemst að bakkanum til að veiða. Í stað 25 veiðimanna geti 50 manns veitt á veiðidegi.

