Leirvogsá full af fiski uppí efsta stað
Leirvogsá er full af fiski frá neðsta til efsta staðar, enda gott vatn í henni þessa dagana,“ sagði Bæring Jón Guðmundsson, sem var í Leirvogsá fyrir fáum dögum, en áin hefur gefið um 100 laxa.
„Sonurinn kom og skoðaði aðeins laxinn hjá mér það þarf að venja hann snemma við í veiðinni, hann fær veiðidelluna. Það er mikið vatn núna i ánni og fiskurinn kominn alveg upp í Trollafoss. Ég hef veitt þarna til fjölda ára og aldrei séð svona mikið af laxi. við vorum eina vakt. Frá hádegi, ég og pabbi, en fiskurinn var frekar tregur í töku í sólinni. Settum þó í nokkra en misstum þrjá, náum tveimur, allt á fluguna. Það lítur vel út með Leirvogsána núna,“ sagði Bæring ennfremur.
Leivogsá heldur alltaf sínu ár eftir ár. Þrátt fyrir að veiðimenn taki vel í soðið þar um slóðir.


