Hermannsvík gaf vel
„Jú það gekk vel í Veiðivötnunum sérstaklega í morgun,” sagði Hjörtur Sævar Steinarsson er við heyrum í honum í Veiðivötnum um helgina þegar hann var að hætta að veiða. En veiðin hefur verið ágæt þar á svæðinu síðan var opnað og margir fengið flotta veiði.
„Fengum fína í morgun á Síldarplaninu, fengum yfir tuttugu fiska en ég kom hérna að veiða á fimmtudaginn. Svo veiddi ég einn í Hermanns Víkinni sem var 6 punda og þetta voru samtals 33 kíló sem fékkstu í þessari ferð. Það er bara fín veiði,” sagði Hjörtur Sævar enn fremur um veiðina.
Veiðin byrjaði flott í Veiðivötnum og margir fengu góða veiði, já væna fiska.


