Veiðipöddurnar aldrei betri – en lítið um fisk
„Annar árið okkar að opna Brennuna, það var mikið vatn og ringdi mikið og mikil spenna,“ sagði Hrönn Jónsdóttir um veiðiferðina hjá Veiðipöddum í Borgarfjörðinn. „Við prófuðum alls konar flugur og settum í tvo væna laxa sem við misstum síðan. Lönduðum einum urriða en því miður engum laxi í þetta skiptið. En það sem skipti okkur mestu máli var samveran og gleðin, laxinn hefði verið mjög góður bónus en stundum er þetta svona,“ sagði Hrönn hress að banda.
Einn lax hefur veiðst í Straumunum og veiddi Árni Baldursson hann á eftir Poddunum og nokkrir birtingar hafa veiðst líka.


