FréttirVeiðileyfi

Gljúfurá áfram hjá SVFR næstu árin

SVFR og Veiðifélag Gljúfurár hafa skrifað undir nýjan samning sem tryggir félagsmönnum áframhaldandi aðgang að þessari einstöku veiðiperlu sem hefur verið hluti af SVFR síðan 1982.

Á síðasta ári var ráðist í umfangsmiklar endurbætur á veiðihúsinu þar sem aðstaðan var tekin í gegn og nýjum heitum potti komið fyrir. Næst á dagskrá eru vegabætur sem munu stórbæta aðgengi að vinsælum veiðisvæðum á neðsta svæðinu.

Það eru sannarlega gleðitíðindi að saga Gljúfurár og SVFR haldi áfram eftir 44 farsæl ár.