Allskonar veður en 220 fiskar á land
„Við erum að opna Litluá í Kelduhverfi nokkrir vaskir veiðimenn, en þetta er fimmtánda árið sem ég opna ána,“ sagði Helgi Jóhannesson er við heyrðum í honum í Kelduhverfi rétt áðan og bætti við; „það hefur verið allskonar veður hérna í byrjun veiðitímans eins og oft hefur verið. En núna eru komnir um 220 fiskar á land og það er bara flott svona í byrjun. Já veiðiskapurinn gengur bara vel hjá okkur en við veiðum fram á hádegi á morgun. Það eru batamerki í ánni finnst mér á milli ára, bleikjan er að veiðast meira og mikið af 40 til 45 sentimetra fiskum. Fiskurinn er að taka púbur og straumflugur núna,“ sagði Helgi enn fremur úr Kelduhverfinu.
Byrjunin í Litluá er ekki ekkert að klikka, flott veiði og fiskar, þó veðurfarið sé margs konar í byrjun veiðitímans.


