FréttirMannamót

Nördaveisla SVFR – krefjandi aðstæður í laxveiði

Ármann Kristjánsson

Nördaveislan verður fimmtudaginn 26. mars á Brasa restaurant. Það er komið að næstu nördaveislu SVFR og nú veltum við fyrir okkur öfgum í laxveiði. Þegar aðstæður eru langt frá því að vera fullkomnar og það reynir á bæði hæfileika og þrautseigju. Hvenær er þetta spurning um kunnáttu og hvenær eru þetta óyfirstíganlegar hamfarir? Húsið opnar kl. 18:00, og formleg dagskrá hefst stundvíslega kl. 19:30 og stendur til kl. 22:00.
Tilboð á dýrindis mat og drykk á meðan viðburði stendur.


Dagskrá

Kynning á Miðsvæðinu í Laxá í Aðaldal ­- Það er ekkert leyndarmál að í Laxá leynast stórlaxarnir
Ármann Kristjánsson kynnir Miðsvæðið í þessari fornfrægu á, fer yfir helstu veiðistaði, flugur og aðstæður.­

Skólabekkurinn – veiði í krefjandi aðstæðum
Jón Þór Ólason, lögmaður og fyrrverandi formaður SVFR, fer yfir hvernig best er að takast á við erfiðar aðstæður við veiðar. Jón hefur verið forfallinn veiðimaður síðan hann veiddi maríulaxinn sinn í Langá upp úr aldamótum og hefur meðal annars barist ötullega gegn sjókvíaeldi.

Spurningakeppni Makkersins­
Taktu þinn besta makker með og sýnið af hverju þið eruð besta teymið, við árbakkann og á öðrum vígstöðvum. ­

Kúltúrhornið
með Jón Þór, Ármanni og HaffaFélagarnir sitja fyrir svörum og ræða hin ýmsu álitamál laxveiðinnar. ­

Happdrætti!
Endum kvöldið á stórsglæsilegu happdrætti þar sem veglegir vinningar eru í boði.