FluguhnýtingarFréttirSumarið

Áhuginn er mikill

„Ármann Ingi tók veturinn í sínar hendur og lét vora til veiða. Þegar væsinn er skrúfaður fastur við skrifborðið hjá þessum 9 ára gutta, er komið vor og sumar í hjarta. Það fyrsta sem mamma hans sagði við hann þegar hann fæddist, var að til væri fjölskyldufluga sem væri leynivopnið og það væri fjölskylduleyndarmál. Síðan þá má segja að veiðidellan hafi umvafið hann. Hann var í poka framan á okkur í öllum veiðiferðum þar til hann fór að rífa af okkur stangirnar. Um leið og hann lærði að hjóla, fór hjálmurinn á hausinn, björgunarvestið utan um úlpu og stöngin í bakpokann. Fjölskyldan hnýtir mikið og var hann snemma farinn að prufa sig áfram. Hann hafði þetta í sér og náði tökunum á fyrstu flugu. Á 9 ára afmælinu sínu valdi hann frekar að fara með pabba sínum á fluguhnýtingarkvöld hjá nýstofnuðu félagi á Akranesi, frekar en afmælisveislu. Meira þarf vart að segja! Nú hefur hann sagt okkur að mikið sé í húfi. Hann dreymir um og er safna sér fyrir trillu. Nú fékk hann þá bráð snjöllu hugmynd að selja hvítan nobbler og leggja fyrir á trillureikninginn. Nú er hnýtt við hvert tækifæri og lagerinn undirbúinn. Á meðan situr stubbur með hugann útá hafi við veiðar.”