„Já fyrsti laxinn er kominn á land í Jöklu í morgun og það hafa veiðst nokkrir í viðbót,“ sagði Þröstur Elliðason en veiðin var að byrja í Jöklu í morgunsárið. „Það var Robertson frá Bretlandi sem veiddi fiskinn Í Skipalá og var fiskurinn 85 sentimetra. Þetta er bara fín byrjun,“ sagði Þröstur með fyrsta laxinn.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2023/06/Fyrsti-ur-Joklu-576x1024.jpeg)
Fyrstu laxarnir úr Laxá í Dölum
„Það eru komnir tveir laxar á land og tveir sluppu af, nokkrir silungar hafa líka veiðst, en það var Þórir Örn Ólafsson sem veiddi fyrsta fiskinn,“ sagði Harpa Hlín Þórðardóttir sem veiddi annan laxinn í Laxá í Dölum á þessu sumri.
„Það eru ekki komnir margir laxar ennþá en veiðihúsið er „bjútifúl“ allt tekið í gegn í vetur og það er góð vatnsstaða í ánni,“ sagði Harpa ennfremur.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2023/06/Laxa-SH-2-768x1024.jpeg)