„Þetta er glæsilegt blað,“ sagði Þorsteinn Bachmann leikari, þegar Gunnar Bender ritstjóri Sportveiðiblaðsins afhenti honum fyrsta eintakið af blaðinu, nýkomið úr prentvélinni.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2023/06/SPORT123.jpg)
Um er að ræða þykkt sumarblað sem inniheldur m.a. viðtöl við Þorstein Bachmann, stórleikara og Önnu Margréti Kristinsdóttur veiðikempu, ferðasögur til Rió Grande og Slóveníu, veiðistaðalýsingar um Skógá og Ytri-Rangá og ítarleg lýsing frá Hítará, skotveiðigrein um minkaveiðar og umfjöllun um veiðar af kayak. Margt fleira er í þessu fyrsta tölublaði ársins en blaðið fer í dreifingu næstu daga til áskrifenda og á sölustaði.