FluguhnýtingarFréttir

Veiðimenn að hnýta á fullu þessa dagana

Febrúarflugur er komið í fullan gang hjá Flugubúllunni og í tilefni þess verður Eiður Kristjánsson meistarahnýtari hjá okkur í þetta skiptið að hnýta á milli kl 12:00 og 15:00 í versluninni laugardaginn 7. febrúar – það verður án efa fjölmennt eins og í fyrra enda hefur Eiður verið duglegur að galdra upp mörg meistaraverkin undanfarið og sýna á samfélagsmiðlum!

Kíkið við, fáið ykkur kaffisopa og heilsið uppá Eið Kristjáns – hann lumar án efa á góðum ráðleggingum fyrir alla.

Veiðimenn eru duglegir að hnýta þessa dagana það styttist í veiðitímann og þá er eins gott að eiga nog af flugum.