FréttirVeiðitölur

Jökla að detta í tvö þúsund á næstu klukkutímum

Enskur veiðimaður með flottan lax úr Jöklu /Mynd ÞE

„Veiðin hefur gengið vel hjá okkur og það eru að veiðast laxar á hverju degi, ekkert yfirfall hjá okkur,” sagði Þröstur Elliðason en áin er komin í 1950 laxa, svo það er ekki langt í 2000 laxa eins og staðan er núna fyrir austan.

En kíkjum aðeins að listann, Eystri-Rangá og Ytri eru á toppnum þessa dagana. Eystri eru að detta í 4000 þúsund laxa og Ytri í 3900 laxa. Þverá í Borgarfirði 2590 laxa, frábær bæting á milli ára þar.

Síðan kemur Jökla núna með 1950 laxa og stutt í 2000asta laxinn. Miðfjarðará með 1472 laxa, svo Norðurá í Borgarfirði með 1107 laxa, síðan Langá á Mýrum 1082 laxa, flott bæting síðan í fyrra. Laxá í Dölum með 1051 og allt á fleygiferð þar ennþá. Laxá í Kjós á stutt í þúsund laxa en núna hafa veiðst 967 laxar og Haffjarðará með 949 laxa.

Sumarið sem byrjaði rólega er að koma verulega sterkt inn, svo um munar, það skiptir öllu.