FréttirVeiðitölur

Yfir 700 laxar í Stóru-Laxá

Ég var bara í hálfan dag en skemmti mér konunglega og þetta er jafn fallegt og alltaf,“ sagði Vala Árnadóttir um stutta heimsókn í Stóru-Laxa í Hreppum. En áin hefur gefi 733 laxa í sumar.

„Fyrsti frostmorguninn, sá fullt af laxi í Bergsnös en hann var eitthvað feiminn að taka. Það hefur verið sól annars og frekar erfitt síðustu vikuna, en samt 10–20 laxar á land á dag svo það er frábær gangur.

Yndislegt að fara í Stóru-Laxá aftur,“ sagði Vala enn fremur.