Flottur Maríulax í Elliðanum
Benedikt Rúnar fékk að veiða í Elliðaànum í gegnum ungmennastarfið hjá SVFR. Það var rosalega gott veður, steikjandi sól og 16 stiga hiti og erfitt að fá fiskinn til að taka en það var fiskur að stökkva allstaðar!
Við settum í einn í Hólsstengnum sem datt af eftir stutta baràttu. Þegar 15 mínútur voru eftir vorum við að veiða Hraunið sem kraumaði allt af fisk þá tók þessi 58cm lax sem er fyrsti laxinn hans Benna og jafnframt stærsti fiskur sem hann hefur veitt.
Elliðárnar hafa gefið 500 laxa og mikið af fiski í henni víða.

