Stórrigningar dag eftir dag og rétt að byrja
Veiðin gengur víða ágætlega þessa dagana en rigningar á Vesturlandi og hefur alla vega hleypt lífi í árnar og bætt vatnsmagn þeirra svo um munar. Og veðurfræðingar spá mikilli rigningu á næstunni og það jafnvel komið flóð í mörgum ám.
Það hefur reyndar gerst núna eins og Laxá í Leirársveit og Leirá sem voru kakólitaðar í dag, þegar rennt var fram hjá og sama sagan var út á Mýrum. Við heyrðum í veiðimönnum á kafi í vatni en fiskurinn var að veiðast eins og í Straumfjarðará.
„Það hefur mikið ringt hérna og áin er komin í flóð,” sagði Freyr Frostason í bakkafullri Straumfjarðará þar sem rigndi og rigndi. „Það eru komnir um tíu laxar ál and tveggja ára laxar, eigum eftir einn og hálfan dag hérna. Áin er raun þreföld af vatni núna,” sagði Freyr enn fremur í bleytunni.
Straumfjarðará hefur gefið 60 laxa á þessari veiðitíð og alla vega er nóg af vatni á þessu svæði og víða, næstu dagar gætu orðið verulega blautir. Spáin er þannig.

