„Við vorum að koma úr Straumunum og þetta er 31 árið hjá okkur þarna við veiðar,“ sagði Vigdís Ólafsdóttir um þeirra árlega veiðitúr í Straumana og bætti við; „þegar við mættum voru komnir 10 laxar á tæpum mánuði og við bættum heldur betur í fengum 20 laxa og 8 sjóbirtinga. Frétti síðan af öðru skemmtilegu kvennholli sem tók við af okkur sem náði 12 löxum. Veiðifélagið Kastró, helvíti hressar veiðikonur. Þetta minnti á gamla daga, mikið af fiski og góð taka en við þekkjum nú svæðið orðið nokkuð vel. Óðflugurnar og við höfum trú á góðu veiðisumri þetta árið. Mamma fór á kostum á níræðisaldri og fór létt með að landa laxi enda nokkuð vön veiðikona. Já þetta er alltaf skemmtilegar veiðiferðir,” sagði Vigdís ennfremur.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/07/C09E4BFB-A7EE-4DF5-9B34-ED921B59FE8F-762x1024.jpeg)
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/07/0CE3C14B-0D8A-4D15-A286-4B08A5E8CC06-762x1024.jpeg)
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/07/C10B7544-A78A-4810-947A-D7C77275B2BC-762x1024.jpeg)