Laxveiðin gengur víða ágætlega, laxinn er að mæta í ríkari mæli þessa dagana veiða og gott vatn í veiðiánum. Eftir miklar rigningar.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/07/9C848FB8-9B9D-427F-AADC-0E8071840F6D-768x1024.jpeg)
„Það er fínt hérna við Laxá og tónleikarnir hjá Bubba í Nesi í gærkvöldi voru frábærir,” sagði Hilmar Hansen en hann hefur verið við veiðar í Aðaldalnum síðustu daga með Björgvin sínum og gengið vel. „Við Bjöggi erum búnir að fá 4 laxa á fjórum vöktum, það er bara meiriháttar.” Það er alltaf gott hérna við Laxá. Bubbi Morthens var byrjaður að veiða áfram eftir flotta tónleika en Laxá í Aðaldal er komin með 65 laxa.
Mynd. Hilmar Hansen nýbúinn að landa.