„Við Sigurður bróðir kíktum í Úlfljótsvatn fyrir skömmu og það var bara mjög gaman,“ sagði Ásgeir Ólafsson þegar við heyrðum aðeins í honum, en hann veiðir mikið og fer á ýmsar veiðislóðir til að renna fyrir fisk. Silungsveiðin gengur víða vel og veiðimenn að fá flotta fiska.
![Úlfljótsvatn1](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/06/Ulfljotsvetn2-473x1024.jpeg)
„Siggi hafði aldrei veitt fisk úr vatninu áður en ég var búinn að segja bróðir frá þeirri staðreynd að ég hef ekki fengið minni fisk en 3 pund í vatninu síðustu þrjú sumur. Þetta eru fáir en stórir fiskar sem eru í boði þarna, sagði ég við bróðir. Það fór nú svo að við fengum þarna væna fiska 3 – 6 punda fyrir utan eina 1,5 punda bleikju, sem Siggi bróðir veiddi. Þannig að við fórum mjög ánægðir heim,“ sagði Ásgeir.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/06/Ulfljotsvatn1-473x1024.jpeg)
Mynd. Ásgeir Ólafsson með væna bleikju