Dagur B Eggertsson borgarstjóri

Fréttatilkynning SVFR
Opnun Elliðaánna 2022 verður nk. mánudag, 20. júní klukkan 07:00 við veiðihúsið í Elliðaárdal. Þetta er í 83. skipti sem árnar eru opnaðar fyrir laxveiði.

Laxinn er þegar genginn í árnar og má reikna með líflegri stemningu við bakkann. Það verður spennandi að sjá við hvaða veiðistað í Elliðaánum laxinn kemur upp en hann er sennilega sá lax sem mest er myndaður á landinu á hverju ári.

Elliðaárnar eru í dag meðal bestu laxveiðiáa landsins þökk sé stofnendum félagsins og hluti af stórkostlegu útivistarsvæði Reykvíkinga. Fjölmargir ungir veiðimenn taka þar sín fyrstu köst á hverju sumri og nýtur stangaveiðiíþróttin vinsælda sem aldrei fyrr.

Mynd: Dagur B Eggertsson borgarstjóri í Elliðaánum fyrir tveimur árum. Mynd GBender.