Ytri Rangá verður eingöngu veidd á flugu frá og með árinu 2027
Stjórn Veiðifélags Ytri Rangár hefur tekið þá mikilvægu ákvörðun að aðalsvæði Ytri Rangár verði eingöngu veitt með flugu frá og með veiðitímabilinu 2027.
Í gegnum tíðina hefur mátt veiða á blandað agn í lok tímabils í Ytri Rangá.
Þegar farsælt samstarf Iceland Outfitters við landeigendur hófst árið 2022 var það skýrt sameiginlegt markmið að gera ána “fly only” innan nokkurra ára. Skrefin hafa verið tekin jafnt og þétt með því að seinka og stytta tímabilið þar sem blandað agn var leyft. Settur var á kvóti og öllum laxi 67 cm og stærri hefur verið sleppt síðastliðin 5 ár.
Árið 2026 verður heimilt að veiða með spúni frá 8. til 27. september, og er það því síðasta tækifæri veiðifólks til að veiða á spún í Ytri Rangá.
Nú er komið að því að taka skrefið til fulls. Eingöngu verður veitt á flugu frá 20. júní til 20. október, 2027. Frá veiðistaðnum Borg og upp að Heklurótum.
Aðstæður og eftirspurn hafa breyst mikið á undanförnum árum. Þótt blandað agn hafi lengi verið vinsælt og hátt verðlagt, finnum við greinilega að meirihluti veiðigesta okkar kýs nú þegar að veiða á flugu á þessum tíma. Þetta er því rétt ákvörðun á réttum tíma. Haustveiði í Ytri Rangá er almennt mjög góð og við erum að fá nýja laxa inn, jafnvel fram í október en við hlökkum mikið til að sjá haustveiðina árið 2027 þegar stór hluti laxanna fær að halda áfram að vera í ánni.
Reynslan sýnir okkur að með því að hlífa fleiri löxum ná þeir að lifa og snúa aftur í ána. Í ljós kom að um hluti þeirra hrygna sem kreistar voru síðastliðið haust höfðu hryngt áður. Það má líka sjá mikla fjölgun stórlaxahænga síðustu 2 ár (+70 cm). Þetta er eitthvað sem við höfum ekki séð áður og það verður gífurlega spennandi að fylgjast með þróuninni á komandi árum.
Náttúrulegt klak á erfitt uppdráttar í Ytri Rangá vegna vatnskulda og sendins botns þar sem eggin eiga það til að skolast burt áður en þau klekjast, þó höfum við fulla trú á að hluti klaks heppnist nú þegar. Veiðifélagið hefur fengið Hafrannsóknunarstofnun í lið með sér til að framkvæma seiðarannsóknir í ánni nú í september.
Annars er mjög gott að frétta úr Ytri Rangá. Veiðin byrjaði seinna en venjulega á Suðurlandi, en hefur tekið vel við sér. Nú er áin komin með nánast sömu veiðitölu og á sama tíma í fyrra, þegar tímabilinu lauk með 5.690 löxum.

