FréttirVeiðitölur

Ytri-Rangá komin yfir 1000 laxa!

Í dag náðist lax númer 1000, eins og búist var við. Það var hann Gísli Jón Hjartarson sem landaði þessum glæsilega hæng á Rauðan Francis með gullkrók á veiðistaðnum Hrafntóftum. Þar með varð hann einnig handhafi fyrsta pönnukökulaxsins í Ytri-Rangá þetta árið.

Ytri-Rangá hefur verið á miklu flugi undanfarna daga og veiðin tekið stöðugum framförum. Í gær komu 90 laxar í bók og daginn áður 98 laxar, þannig að það styttist heldur betur í fyrsta 100 laxa dag tímabilsins.