Blanda á fleygiferð, komin með 290 laxa
„Þetta var fín veiði í Blöndu, átti ekki von á þessu eftir síðasta sumar, fengum nokkra fína laxa,“ sagði veiðimaður sem var að koma úr Blöndu, en frændi hans var í næsta nágrenni og fékk ekki högg, nema kannski á hausinn. Veiðin er skrítin á Norðurlandi þessa dagana.
Blanda hefur gefið 290 laxa en allt síðasta sumar gaf áin 54 laxa, breytingin er mikil til hins betra. Laxá á Ásum hefur aðeins gefið 140 laxa, sem telst ekki mikið þar um slóðir á þessum tíma sumars.
Víðidalsá með 150 laxa og Vatnsdalsá með 146 laxa. Sumarið byrjaði seinna fyrir sunnan og er komið á fleygiferð, það er vonandi á leiðinni fyrir norðan. Það væri töluvert betra að fá smá af fiski.

