Fréttir

Fimm fallegir laxar, fjórir veiðidagar

„Já við félagarnir ákváðum að taka tvö samliggjandi holl í Hörðudalsá þetta sumarið, við erum búnir að veiða í Hörðudalsá í mörg ár og alltaf jafn gaman,“ sagði Sævar Jónsson sem var að koma úr Hörðudalsá í Dölum.

„Þegar við lögðum af stað í þessa ferð var mikil tilhlökkun, góð spá, rigning og lítilsháttar vindur.  Áin var búinn að vera í miklum ham dagana á undan, lituð og óveiðanleg, það má segja að það hafi hlakkað í okkur félögunum. 

Þetta minnti okkur á þær aðstæður sem við lentum í árið 2024 þegar við veiddum 25 laxa á tveimur dögum, einmitt eftir mikil flóð og stórstaum. 

Við mætum í hús núna á þriðjudegi og á miðvikudag var stærsti straumur, þegar við vorum búnir að kanna alla veiðistaði í mjög krefjandi veðuraðstæðum, bæði rok og lítilsháttar rigning fannst okkur vera lítið af fiski, kannski vorum við of bjartsýnir en þannig er það yfirleitt. Við hins vegar gerðum okkur miklar vonir um að það kæmi góð ganga á stórstraum, það reyndist ekki vera og endaði túrinn okkar í 5 fallegum löxum og tveimur bleikjum. 

Skemmtilegir dagar í góðum félagsskap er auðvitað það sem þetta snýst allt um. Við félagarnir veltum einnig fyrir okkur þeirri staðreynd að ennþá skuli vera leyft að nota maðk sem agn þar sem alltaf er erfitt fyrir fluguveiðimenn að koma á eftir maðkaholli, það er ekki afsökun en allt er þetta spurning um sportið sjálft sem og virðingu við náttúruna.  Veiðifélagar voru þeir Rúdólf Jósefsson, Hörður Jónsson og Kristján Baldvinsson,“ sagði Sævar enn fremur.