Blanda hefur gefið 20 laxa
Laxveiðin er langt frá því að vera upp á tíu víða í veiðiánum þessa dagana, Jónsmessu straumurinn skilaði litlu sem engu, enda kom hann óvenju snemma þetta árið. Einn og einn lax er að veiðast sumstaðar þar sem hefur verið opnað fyrir veiðimenn. En tíminn nægur ennþá, fiskurinn mætir en hvenær veit bara enginn. Næsti straumur er stóra málið.
Blanda var ekki góð í fyrra en núna eru komnir 20 laxar á land og hellingur hefur að veiðast af vænum silungi. „Ég er búinn að vera með tvær stangir á svæði eitt í fjóra daga en áin hefur gefið 20 laxa,” sagði Þorsteinn Hafþórsson við Blöndu í kvöld og bætti við; „það eru útlendingar að veiða þessa dagana hjá okkur. Ósinn er að gefa flotta silunga og þar hefur veiðst vel af honum fiskur frá 45 til 58 sentimetra. Ef menn ná að kasta nógu langt er hægt að fá flotta veiði, 10 til 15,” sagði Þorsteinn enn fremur

